Minn Hinsti Dans First performance by: Paul Oscar - 1997
 
 
  London, París, Róm - urðu orðin tóm Gekk þann gyllta breiða, blindaður af ást Falskir kunningjar, snerust um mig einan Fékk mér kavíar, núna er allt um seinan
  Því ég stíg minn hinsta dans Og ég kveð mitt líf með glans En ég iðrast aldrei neins, iðrast aldrei
  Kristals kampavín, perlur postulín Demantar í matinn, ást í eftirrétt Ef ég elsk' í dag, blöðin birta á morgun Fæ mér freyðibað, drekki mínum sorgum
  Og ég stíg minn hinsta dans Og þannig kveð mitt líf með glans En samt iðrast ég aldrei neins, iðrast aldrei
  Allt sem ég fæ í dag, farið burt á morgun
  Svo ég stíg minn hinsta dans Og þannig kveð mitt líf með glans En samt iðrast ég aldrei neins, iðrast aldrei
 
  
								 |